154. löggjafarþing — 5. fundur,  18. sept. 2023.

varamenn taka þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Njáll Trausti Friðbertsson verði fjarverandi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá varaformanni þingflokks Pírata um að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Þá hefur borist bréf frá starfandi formanni þingflokks Framsóknarflokks um að Lilja Alfreðsdóttir verði fjarverandi á næstunni. Að lokum hefur borist bréf frá Guðbrandi Einarssyni um að hann geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni.

Í dag taka því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins á Norðausturlandi, Ragnar Sigurðsson, en 1. varamaður hefur þegar tekið sæti, 1. varamaður Pírata í Suðvesturkjördæmi, Eva Sjöfn Helgadóttir, 1. varamaður á lista Framsóknarflokks í Reykjavíkurkjördæmi suður, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, og 3. varamaður á lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi, Elva Dögg Sigurðardóttir, en 1. og 2. varamaður hafa boðað forföll.

Eva Sjöfn Helgadóttir og Aðalsteinn Haukur Sverrisson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.

Landskjörstjórn hefur gefið út tilkynningu á grundvelli 1. mgr. 113. gr. kosningalaga til Elvu Daggar Sigurðardóttur. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kosningu og kjörgengi hennar.