154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

Störf þingsins.

[13:43]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Virðulegur forseti. Ég get tekið undir þau orð sem hér voru látin falla þar sem Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni voru þökkuð góð störf hér. Ég tek undir það. En ég ætla að ræða hér sérstaklega annað mál. Á hverjum degi fáum við nú hræðilega nýjar fréttir af umfangi þess umhverfisskaða sem strok þúsunda frjórra eldislaxa úr sjókvíum Arctic Seafarm í Patreksfirði er að valda. Upp er komin gjörbreytt staða fyrir verndun villtra íslenskra laxastofna sem krefst tafarlausra aðgerða. Það þarf nú þegar að hefjast handa við endurskoðun á áhættumati erfðablöndunar við norska eldislaxa og grípa til annarra þeirra aðgerða sem þörf er á til að vernda stofnana, bæta eftirlit og draga þau stórfyrirtæki sem að baki standa til enn frekari ábyrgðar gagnvart eigin starfsemi, eftirliti og samfélagslegri ábyrgð gagnvart þeim samfélögum sem þau starfa í og þeirri stöðu sem þau kunna að vera sett í vegna aðgerða sem þarf að grípa til gagnvart fyrirtækjunum. Styrkja þarf regluverkið er tekur til ábyrgðar eldisfyrirtækjanna sjálfra með skýrum og skilvirkum viðurlögum sem fela í sér nægjanlega hvatningu til að fyrirtæki sýni umhverfisáhrifum starfsemi sinnar enn frekari virðingu. Nú er það að gerast sem margir óttuðust, að kynþroska norskur eldislax syndi um þúsundum saman við strendur landsins eftir umhverfisslys, leiti uppi íslenskar ár til hrygningar og blandist þar við náttúrulega laxastofna með óafturkræfum áhrifum, við stofna sem aðlagast hafa einstökum ám og náttúru þeirra í þúsundir ára. Neikvæð áhrif slíkrar erfðablöndunar geta komið fram strax eða mörgum kynslóðum síðar og skaðað þannig erfðasamsetningu og aðlögunarhæfni laxastofna til framtíðar.

Í 3. mgr. 6. gr. laga varðandi áhættumat erfðablöndunar segir: „Áhættumat skal endurskoða svo oft sem þörf þykir en þó eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti.“

Það er algerlega ljóst að sú fordæmalausa staða sem nú er komin upp kallar á að það mat verði tekið upp og endurskoðað í ljósi gjörbreyttra forsendna. Þá bendi ég á að hæstv. matvælaráðherra tilkynnti við upphaf stefnumótunar síðasta vor að leyfisveitingar á nýju svæði væru á pásu á meðan unnið væri að langtímastefnu. (Forseti hringir.) Einnig setti matvælaráðherra af stað endurskoðun á ferlum gagnvart stroki eldislax og er nú unnið að innleiðingu þeirra aðgerða. (Forseti hringir.) Ég fagna þeirri vegferð hæstv. matvælaráðherra.