154. löggjafarþing — 26. fundur,  9. nóv. 2023.

desemberuppbót til lífeyrisþega.

[10:37]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka bara hv. þingmanni hlý orð og vonast til þess að við á Alþingi getum náð saman um þetta mál en ekki síður að það verði tekið á þessu til framtíðar í þeim kerfisbreytingum sem eru væntanlegar á kerfi almannatrygginga.