154. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2023.

mótvægisaðgerðir fyrir Grindvíkinga.

[13:35]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Kristrúnu Frostadóttur þessa fyrirspurn. Þetta er auðvitað forgangsmál því að staða íbúa í Grindavík er flókin, eins og hv. þingmaður fór svo ágætlega yfir í fyrirspurn sinni. Það er ekki einungis að fullkomin óvissa sé um það hversu lengi rýming mun vara og hvað nákvæmlega mun gerast undir yfirborðinu á Reykjanesskaga heldur er húsnæði fólks líka verulega skemmt, bæði innbú og húsnæðið sjálft, og í þriðja lagi eru ansi margir Grindvíkingar sem ekki hafa getað mætt til vinnu og það er alveg ljóst að afkoma þessa fólks hlýtur að vera forgangsmál. Undir forystu félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur verið sett af stað vinna með fjármála- og efnahagsráðuneyti og í samráði við verkalýðshreyfinguna og Samtök atvinnulífsins til þess að unnt sé að tryggja laun í rýmingu til tiltekins tíma. Sem betur fer eigum við ýmislegt í okkar verkfærakistu og ég get nefnt sem dæmi ýmsar þær aðgerðir sem gripið var til í heimsfaraldri þar sem bæði voru nýttar hefðbundnar leiðir sem við þekkjum vel annars staðar frá eins og hlutabótaleiðin, en líka gripið til sértækra aðgerða eins og laun í sóttkví. Það er eitt af því sem við erum að skoða sem fyrirmynd í þessum efnum. Það er unnið að frumvarpi sem tekur utan um þetta og ég átti fund í gær ásamt félags- og vinnumarkaðsráðherra með forystufólki ASÍ, VR, Verkalýðsfélagi Grindavíkur og Samtökum atvinnulífsins því að það er mjög mikilvægt að þetta sé sameiginlegt verkefni atvinnurekenda og stjórnvalda og það skiptir máli að fyrirtækin sem eru þess megnug leggi sitt af mörkum til að tryggja afkomu fólksins. En það mun svo sannarlega ekki standa á stjórnvöldum að tryggja þessa afkomu sem ég tel vera algjört forgangsmál til næstu mánaða.