154. löggjafarþing — 33. fundur,  20. nóv. 2023.

varamenn taka þingsæti.

[15:03]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá Dagbjörtu Hákonardóttur, 11. þm. Reykv. n., um að hún verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Fimmtudaginn 16. nóvember tók því sæti á Alþingi Ragna Sigurðardóttir, 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, en 1. varamaður á lista hefur þegar tekið sæti.

Landskjörstjórn hefur gefið út tilkynningu á grundvelli 1. mgr. 113. gr. kosningalaga til Rögnu Sigurðardóttur. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kosningu og kjörgengi hennar.