154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[15:06]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Virðulegur forseti. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Verðbólga minnkaði lítillega milli mánaða, undirliggjandi verðbólga hefur hjaðnað og áfram eru vísbendingar um að tekið sé að hægja á einkaneyslu og fjárfestingu. Því miður hafa verðbólguhorfur þó versnað. Spennan í þjóðarbúinu reynist meiri og gengi krónunnar hefur lækkað. Verðbólguvæntingar hafa einnig haldist háar og kostnaðarhækkanir hafa haft meiri áhrif á verðbólgu en áður. Þetta, auk óvissu um efnahagsleg áhrif jarðhræringa á Reykjanesi, bendir til þess að herða gæti þurft taumhald peningastefnunnar enn frekar.

Verðbólguskeiðið núverandi hófst með verðhækkunum sem tengdust framleiðsluvandræðum vegna heimsfaraldurs og sóttvarnaráðstafana honum tengdum ásamt hækkun orku-, gas- og hrávöruverðs vegna innrásar Rússlands í Úkraínu sem ágerðist vegna mikillar eftirspurnar eftir að efnahagsleg áhrif faraldursins runnu sitt skeið.

Ríkisfjármálin hafa helst eina leið til að aðstoða í þessari stöðu við að ná niður verðbólgu og vöxtum, þ.e. að halda aftur af vexti útgjalda, hagræða og vinna gegn sóun í ríkisrekstri. Það verður að vera forgangsatriði okkar hér í þessum sal og það á að vera hægt að leysa úr þessari stöðu ef við sameinumst einfaldlega um það. Það hefur hægt á verðhækkunum og forsendur eru til að verðbólga og vextir lækki á nýju ári að því gefnu að réttar ákvarðanir verði teknar. Með það fyrir augum, til að mynda að laun hafa hækkað mikið og kaupmáttur launa hefur þrátt fyrir allt aukist, er þetta því verkefni sem við verðum að vinna saman, bera sömu ábyrgð og ganga saman í sömu átt, hvort sem það er Seðlabankinn, Alþingi, verkalýðsforystan eða vinnumarkaðurinn. Við erum öll saman á þessum báti og ef við reynum að sigla hvert í sína áttina er algerlega fyrirsjáanlegt að brotsjórinn skelli jafnt á okkur öllum.