154. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2023.

tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

508. mál
[16:32]
Horfa

Frsm. velfn. (Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti hv. velferðarnefndar um frumvarp til laga um tímabundinn stuðning til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ. Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund góða gesti, m.a. frá Grindavíkurbæ og félagasamtökum launþega, ferðaþjónustu og atvinnurekanda. Þeir gestir sem mættu á fund nefndarinnar voru almennt jákvæðir í garð frumvarpsins og lýstu almennum stuðningi við það.

Frumvarpið er hluti af viðbrögðum ríkisstjórnar Íslands við þeirri óvissu sem ríkir í kjölfar jarðhræringa á Reykjanesskaga og er lagt fram í ljósi alvarlegs ástands í Grindavíkurbæ. Þá var það samið í góðu samráði við bæði Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands.

Markmið frumvarpsins er að vernda afkomu fólks sem ekki getur gegnt störfum sínum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ þar sem starfsstöð þess er í sveitarfélaginu, með því að tryggja launagreiðslur þess upp að ákveðnu hámarki. Er þannig gert ráð fyrir að heimilt verði að veita tímabundinn stuðning vegna greiðslu launa starfsfólks á almennum vinnumarkaði upp að ákveðnu hámarki, enda séu tiltekin skilyrði uppfyllt. Jafnframt er markmið að viðhalda ráðningarsambandi atvinnurekenda og starfsfólks. Fyrir liggur að ríki og Grindavíkurbær munu áfram greiða starfsfólki sínu í Grindavík laun.

Nefndin fjallaði sérstaklega um viðmiðunartímabil við einstaklinga en í 1. mgr. 8. gr. kemur fram að þegar stuðningur er greiddur einstaklingum á grundvelli 2. mgr. 5. gr. eða 6. gr. skal samkvæmt 1. mgr. 8. gr. taka mið af meðallaunum viðkomandi og/eða meðaltali reiknaðs endurgjalds sem greitt hefur verið tryggingagjald af á tímabilinu frá ágúst til október á þessu ári.

Við umfjöllun nefndarinnar var því velt upp hvort það tímabil sem miðað væri við kynni í einhverjum tilfellum að gefa ranga mynd af raunverulegum tekjum fólks með hliðsjón af því að einhverjir kynnu að vera með lægri tekjur yfir sumarmánuðina, svo sem vegna orlofs. Í því sambandi kom fram að miklu máli skipti um skilvirkni úrræðisins að framkvæmdin væri eins einföld og kostur væri á. Þá kemur einnig fram í greinargerð með frumvarpinu að gengið sé út frá því að Vinnumálastofnun sé heimilt að taka tillit til aðstæðna þar sem starfsfólk hafi ekki átt rétt á launagreiðslu nema að hluta á framangreindu tímabili og reikna út meðallaun viðkomandi á grundvelli þeirra mánaða sem hlutaðeigandi starfsfólk fékk greidd laun. Nefndin leggur áherslu á að Vinnumálastofnun taki tillit til aðstæðna og gefi tímabilið ranga mynd af tekjum fólks verði við því brugðist.

Fyrir nefndinni komu fram ábendingar um að frumvarpið tæki ekki til þeirra launatengdu gjalda sem atvinnurekanda ber að standa straum af, utan þeirra 11,5% sem kveðið er á um að greiða skuli vegna mótframlags launagreiðanda í ríkissjóð. Þannig kynni skyldan til að greiða tryggingagjald vegna þess starfsfólks sem ekki getur gegnt störfum sínum að reynast fyrirtækjum á svæðinu íþyngjandi og hafa áhrif á ákvarðanir einhverra fyrirtækja um hversu lengi þau treysti sér að greiða laun þess. Nefndin tekur fram að frumvarpinu er aðeins ætlað að gilda um tímabundinn stuðning til greiðslu launa starfsfólks á almennum vinnumarkaði. Þannig er brugðist við óvissuástandi sem ekki er vitað hvað varir lengi og áhersla verður áfram lögð á að fylgjast með framvindu mála og grípa inn í verði þess þörf að styðja frekar við bæði atvinnurekendur og starfsfólk.

Nefndin fjallaði einnig um kjarasamningsbundin réttindi starfsfólks sem falla undir gildissvið frumvarpsins og vill árétta að starfsfólk haldi öllum áunnum réttindum sínum sem kjarasamningar kveða á um. Nefndin bendir í því sambandi á að í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir að um greiðslur launa atvinnurekanda eða um stuðning vegna tekjutaps starfsfólks fari með öðrum hætti en að um hefðbundin laun sé að ræða. Líta verði þannig á að starfsfólki sé heimilt að viðhalda aðild sinni að stéttarfélagi á grundvelli laga um stéttarfélög og vinnudeilur.

Það var líka talsverð umræða í nefndinni um 11. gr. frumvarpsins sem fjallar um ósamrýmanlegar greiðslur. Í ákvæðinu er kveðið á um að skilyrði um stuðning teljist ekki uppfyllt njóti starfsfólk eða sjálfstætt starfandi einstaklingur greiðslna samkvæmt öðrum lögum eða kjarasamningum sem ætlaðar eru til framfærslu viðkomandi á sama tímabili og greiðslum samkvæmt frumvarpinu, verði það að lögum, er ætlað að ná til.

Við umfjöllun nefndarinnar komu fram álitamál um hvað teldist til ósamrýmanlegra greiðslna. Ábending kom fram um að greiðslur atvinnurekanda til starfsfólks í veikindaleyfi hlytu að teljast til launagreiðslna sem atvinnurekandi verði að standa skil á þrátt fyrir að ekki komi á móti vinnuframlag frá starfsmanni. Með hliðsjón af því væri eðlilegt að atvinnurekandi nyti þess stuðnings sem frumvarpið hefur fram að færa undir þeim kringumstæðum. Við tökum undir þetta sjónarmið og teljum nauðsynlegt að stutt verði við atvinnurekanda til greiðslu launa í veikindaleyfi starfsmanna uppfylli hann önnur skilyrði frumvarpsins.

Þá var talsverð umræða í nefndinni um þau tilvik þegar starfsmaður hefur, samhliða því að vera í ráðningarsambandi við atvinnurekanda á Grindavíkursvæðinu, sinnt hlutastörfum utan svæðisins og tækifæri hans til að halda því áfram en njóta jafnframt stuðnings sem frumvarpið kveður á um. Nefndin áréttar að mikilvægt er að þessum einstaklingum verði veitt nægjanlegt svigrúm til að bregðast við breyttum aðstæðum og að ekki skuli litið svo á að slíkar greiðslur séu ósamrýmanlegar í skilningi 11. gr. frumvarpsins. Með sömu rökum leggur nefndin áherslu á að tekjur starfsmanna vegna hlutastarfa komi ekki til skerðingar greiðslum sem frumvarpið kveður á um.

Að lokum telur nefndin mikilvægt að samhliða gildistöku þess úrræðis sem frumvarpið mælir fyrir um fari fram kynning á því og að tryggt verði að kynningin nái til þeirra hópa sem úrræðið kemur helst til að nýtast. Taka þarf sérstakt tillit til þess að starfsmenn fyrirtækja á Grindavíkursvæðinu eru af ýmsum þjóðernum og því verður að tryggja að upplýsingar um úrræðið verði aðgengilegar á fleiri tungumálum en íslensku. Nefndin hvetur sérstaklega til þess að Vinnumálastofnun birti upplýsingar um það úrræði sem frumvarpið kveður á um a.m.k. á ensku og pólsku auk íslenskunnar.

Herra forseti. Það er mat nefndarinnar að frumvarpið sem hér er til umfjöllunar feli í sér mikilvægt skref í þá átt að tryggja launagreiðslur til þeirra einstaklinga sem búa við mikla óvissu vegna náttúruhamfara sem eiga sér stað í Grindavíkurbæ. Jafnframt telur nefndin mikilvægt að stutt verði við að ráðningarsambandi atvinnurekenda og starfsfólks verði viðhaldið í ljósi þeirrar óvissu sem uppi er. Þá bendir nefndin á að úrræði frumvarpsins hefur takmarkaðan gildistíma og stuðningur samkvæmt því rennur út 29. febrúar á næsta ári. Eins og áður segir ríkir algjör óvissa um hvernig atburðarásin á Grindavíkursvæðinu muni þróast og því er erfitt að spá fyrir um framvindu mála eins og við heyrum jú daglega.

Nefndin undirstrikar mikilvægi þess að stjórnvöld fylgist áfram náið með framvindunni og grípi til aðgerða til að styðja við bakið á starfsfólki og atvinnurekendum á Grindavíkursvæðinu eins lengi og þörf krefur.

Þá telur nefndin nauðsynlegt að fylgst verði með áhrifum þeirra aðgerða sem frumvarpið mælir fyrir um. Mikilvægt sé að taka upplýsta ákvörðun áður en úrræðið rennur sitt skeið um það hvort frekari aðgerða sé þörf til þess að vernda afkomu fólks sem getur ekki gegnt störfum sínum vegna hamfaranna.

Velferðarnefnd leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Allir nefndarmenn skrifa undir þetta mál sem eru, ásamt þeirri sem hér stendur, Líneik Anna Sævarsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Bryndís Haraldsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Magnús Árni Skjöld Magnússon, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Óli Björn Kárason. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir skrifaði undir málið með fyrirvara. Guðbrandur Einarsson, áheyrnarfulltrúi, var fjarverandi við afgreiðslu málsins en er samþykkur áliti þessu.

Ég vil í lok þessarar kynningar á nefndarálitinu þakka hv. velferðarnefnd fyrir afskaplega vönduð störf á skömmum tíma. Við þurfum stundum hér í þinginu að takast á við það þegar brýn mál koma upp að vera dálítið fljót til og við vitum að það er beðið eftir því að þetta mál fari í gegnum þingið því að þrátt fyrir að örlítið hafi róast á svæðinu þá vitum við sannarlega að það er ekki öll vá fyrir vind eins og hægt er að segja, langt í frá. Það verða fleiri mál sem við þurfum að fjalla um hérna á næstu dögum til að styðja við þetta fólk sem hefur þurft að rýma heimili sín og fara af svæðinu og það skiptir máli að geta tryggt framfærslu eins og kostur er á þessum tíma.