154. löggjafarþing — 41. fundur, 4. des. 2023.
staðfesting kosningar.
Virðulegi forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur fengið til meðferðar tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu Gretu Óskar Óskarsdóttur sem 3. varamanns á lista Pírata í Suðvesturkjördæmi. Nefndin hefur fundað til að fjalla um kosninguna og kjörgengið og mælir nefndin einróma með staðfestingu kosningar Gretu Óskar Óskarsdóttur.