154. löggjafarþing — 47. fundur,  11. des. 2023.

stuðningur við mál um græna orkuframleiðslu.

[15:49]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill benda á að liðurinn um fundarstjórn forseta er ekki til þess ætlaður að halda áfram umræðum um mál sem (BergÓ: Ég var að gefa yfirlýsingu um stuðning.) voru rædd í óundirbúnum fyrirspurnum. Forseti minnir hv. þingmenn á að nýta tækifærið til að gera athugasemdir við fundarstjórn forseta til þess, en ekki til þess að eiga framhald á umræðum sem eru eðli málsins samkvæmt takmarkaðar.