154. löggjafarþing — 48. fundur,  12. des. 2023.

fjáraukalög 2023.

481. mál
[18:03]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Í frumvarpi þessu til fjáraukalaga fyrir árið 2023, sem nú er brátt á enda, er fjallað um þær breytingar sem gera þarf á útgjaldaheimildum ríkissjóðs frá þegar samþykktum fjárlögum. Í 1. mgr. 26. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, segir um frumvarp til fjáraukalaga að ráðherra sé heimilt, ef þess gerist þörf, að leita aukinna fjárheimilda í frumvarpi til fjáraukalaga til að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum innan fjárlagaársins, enda hafi ekki verið unnt að bregðast við þeim með úrræðum sem tilgreind eru í lögum um opinber fjármál. Þetta síðasta atriði er mjög mikilvægt, enda hafi ekki verið unnt að bregðast við þeim auknu fjárútgjöldum með þeim úrræðum sem tilgreind eru í lögunum.

Til að tryggja aga í ríkisfjármálum þarf að rökstyðja í frumvarpi til fjáraukalaga að ekki hafi verið unnt að bregðast við með öðrum hætti en með nýtingu heimildar ráðherra til að leggja fram það frumvarp. Nokkrar leiðir eru færar til að mæta óvæntum útgjöldum á annan hátt. Hér kemur fyrst til skoðunar útgjaldasvigrúm hvers fjárlagaliðar í fjárlögum þess árs sem fjáraukalög ná til og eftir það nýting fjármuna úr almenna varasjóðnum á fjárlagaárinu. Við erum því annars vegar með útgjaldasvigrúm og hins vegar almennan varasjóð til að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum innan fjárlagaársins.

Í 24. gr. laga um opinber fjármál er fjallað um almenna varasjóðinn, A1-hluta, en bæði það ákvæði og ákvæðið um frumvarp til fjáraukalaga kveða á um að varasjóði annars vegar og fjáraukalögum hins vegar sé ætlað að bregðast við ríkisútgjöldum sem eru tímabundin, ófyrirsjáanleg og óhjákvæmileg og sem ekki er hægt að bregðast við með öðrum hætti.

Ég tel mjög mikilvægt áður en frumvarp til fjáraukalaga er lagt fram að það séu færð rök fyrir því af hverju ákveðnir gjaldaliðir eru í fjáraukalögum og þá með hliðsjón af því sem ég hef hér sagt, að ekki hafi verið unnt að bregðast við með öðrum hætti, þ.e. ekki með útgjaldasvigrúmi og almenna varasjóðnum.

Þau málefnasvið sem óskað er eftir auknum fjárheimildum til í frumvarpinu eru heilbrigðismál, mennta- og menningarmál, umhverfis-, orku- og loftslagsmál, samgöngu- og fjarskiptamál, almanna- og réttaröryggismál og önnur málefnasvið, sem tilheyra málefnasviðum 1–4, 6, 8, 10, 12–14, 16 og 34–35.

Í umfjöllun um þessi málefnasvið er ekki fjallað um hvort útgjaldasvigrúm hafi verið tæmt eða hvort leitað hafi verið í almenna varasjóðinn, eða það sem mest er um vert, hvort hinar auknu fjárheimildir séu til að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum innan fjárlagaársins, líkt og ákvæði 26. gr. laga um opinber fjármál gerir skýra kröfu um. Það er miður. Frumvarpið ber merki um skort á aga í stjórnun opinberra fjármála.

Mikilvægt er, svo við getum haft þennan aga, að við förum eftir skýrum lagaákvæðum um lög um opinber fjármál. Það er sá lagarammi sem okkur ber að vinna eftir í fjárlaganefnd og líka fjármálaráðherra og í þeim málum sem lögð eru fyrir Alþingi til samþykktar sem varða auknar fjárheimildir. Það er mjög mikilvægt að við förum eftir skýrum lagatexta hvað það varðar, orðanna hljóðan, og það sé rökstutt hvaða fjárheimildir er verið að fara fram á í fjáraukalögum. Við náum aldrei þessum aga ef við förum ekki sjálf eftir þeim reglum sem við setjum okkur.

Í frumvarpinu er lagt til að fjárheimildir ríkissjóðs verði auknar um heila 83,5 milljarða kr., eða um 6,3% frá þegar samþykktum fjárheimildum. Það er verið að auka fjárheimildir ríkissjóðs um 83,5 milljarða. Þetta eru gríðarlegar fjárhæðir í samhengi fjárlaga. Vaxtagjöld ríkissjóðs reyndust 26 milljörðum kr. hærri en áætlað var og lífeyrisskuldbindingar jukust um 44 milljarða kr. umfram áætlun fjárlaga. Þá eru aðrar breytingar á frumgjöldum áætlaðar 13 milljarðar kr. Þetta eru háar tölur.

Heildartekjur voru einnig 116 milljörðum kr. hærri en í samþykktum fjárlögum. Þar af aukast skatttekjur og tryggingagjöld um 101 milljarð kr. Af einstökum sköttum aukast tekjur af tekjuskatti lögaðila mest frá áætlun fjárlaga eða um 29 milljarða kr. Þrátt fyrir þetta aukast skuldir ríkissjóðs á milli ára. Við erum að auka heildartekjur um 116 milljarða kr. frá samþykktum fjárlögum en samt aukast skuldirnar á milli ára.

Heildarskuldir ríkissjóðs eru í árslok 2023 áætlaðar um 1.706 milljarðar kr. en voru áætlaðar 1.560 milljarðar kr. í fjárlögum fyrir árið 2023. Hækkunin nemur 146 milljörðum kr. Við erum að hækka heildarskuldir ríkissjóðs í ár um 146 milljarða kr. Áætlað er að skuldir ríkissjóðs samkvæmt skuldareglu verði 32,7% af vergri landsframleiðslu í árslok 2023 sem eru óbreyttar horfur frá fjárlögum fyrir árið 2023. Þetta eru óbreyttar horfur þrátt fyrir að 116 milljörðum meira komi í kassann en áætlað var.

Áætlað er að halli ríkissjóðs verði í ár um 45 milljarðar kr. eða 1,1% af vergri landsframleiðslu. Það er ríflega 74 milljörðum kr. eða 1,9% af vergri landsframleiðslu betri afkoma en búist var við í áætlun fjárlaga. Hallinn á ríkissjóði og skuldir eru því ekki á réttri braut. Við erum ekki á réttri braut hvað varðar halla á ríkissjóði og skuldir. Stóraukin vaxtabyrði ber þess merki og sýnir að greiða þarf niður skuldir eigi ekki að stefna í óefni. Við verðum að fara að greiða niður skuldir svo ekki stefni í óefni hvað varðar vaxtabyrði.

Verðbólgan hefur sýnilega sett strik í ríkisreikninginn. Með hækkandi vaxtastigi aukast vaxtagjöld ríkissjóðs sem og lífeyrisskuldbindingar. Það er hagur okkar allra að ná tökum á verðbólgunni. Á þessu ári er útlit fyrir að vaxtagjöld ríkissjóðs verði 106 milljarðar kr. Á næsta ári er útlit fyrir að þau aukist og verði 117 milljarðar kr. Vaxtagjöldin eru bara að fara að aukast, úr 106 milljörðum í 117 milljarða kr. Eins og staðan er nú fer tíundi hluti allra tekna ríkissjóðs í vaxtagreiðslur. Ef ekkert verður aðhafst mun það hlutfall aukast. Gríðarlega mikilvægt er því að draga úr skuldum ríkissjóðs. Ein helsta breytan í þjóðhagkerfum er hvort hið opinbera í hverju landi geti staðið undir eigin skuldbindingum og staðið við eigin fjárhagsáætlanir. Slíkt getur haft mikil áhrif á efnahagslífið. Þær breytingar sem hér hafa orðið, sem ég hef rakið hér, benda til að fjárhagsáætlanir okkar þegar kemur að fjárlögum ríkissjóðs séu ekki að standast nægilega vel. Við þurfum að bæta áætlanagerð þegar kemur að fjárlagagerð og fjárlögum næsta árs.

Í frumvarpinu er fjallað um hugsanleg áhrif jarðhræringa á Reykjanesskaga á fjárhag ríkissjóðs. Þar er nefnt að svigrúm sé til staðar í almennum varasjóði að umfangi 3,8 milljarðar kr. Nú liggur fyrir að útgjöld ríkissjóðs munu aukast á þessu ári vegna jarðhræringanna og er þegar gert ráð fyrir auknum útgjaldaheimildum, þar af 2,7 milljörðum kr. vegna varnargarðs, 2 milljörðum kr. vegna tímabundins stuðnings til greiðslu launa og 375 millj. kr. vegna húsnæðisstuðnings. Það er afar mikilvægt að samfélagið styðji við bakið á Grindvíkingum á þessum erfiðu tímum en ríkisstjórnin getur ekki réttlætt aukna skattheimtu, þegar fé er til í hinum almenna varasjóði, til nákvæmlega þeirra verkefna sem skattinum er ætlað að standa undir. Fyrr í haust var lagður á nýr skattur á almenning sem sagður var nauðsynlegur til að greiða fyrir varnargarðinn í kringum Svartsengi. Voru lög um hann samþykkt með hraði, frumvarpið var rætt við þrjár umræður samdægurs og loks samþykkt um kvöldið. Framkvæmdir um vernd hinna mikilvægu innviða voru þegar hafnar á Reykjanesskaga við samþykkt laganna en hin nýja skattheimta hefst ekki fyrr en um áramót, 1. janúar 2024. Hér var því nýr skattur keyrður í gegn með offorsi og að ósekju. 1. minni hluti ítrekar stuðning við allar aðgerðir sem miða að því að aðstoða Grindvíkinga á þessum erfiðu tímum en beinir því til ríkisstjórnarinnar að klæða ekki ótengda skattlagningu í búning stuðningsaðgerða. Það er mikilvægt.

Í frumvarpinu er lögð til fjárheimild vegna eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega að fjárhæð 66.381 kr. en sams konar eingreiðsla hefur verið afgreidd í fjáraukalögum síðustu þrjú ár. 1. minni hluti fagnar því að samstaða hafi náðst á Alþingi um þennan mikilvæga stuðning en leggur jafnframt áherslu á að þeir ellilífeyrisþegar sem lökust hafa kjörin fái einnig sambærilegan stuðning. Hér er um mikið réttlætismál að ræða. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur lagt fram breytingartillögu þess efnis. Tillagan boðar að þeir ellilífeyrisþegar sem hafa tekjur undir frítekjumörkum laga um almannatryggingar, þ.e. svo lágar tekjur að þeir fá greiddan óskertan lífeyri almannatrygginga, fái greidda eingreiðslu að sömu fjárhæð og örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar. Samkvæmt Tryggingastofnun ríkisins myndi eingreiðslan ná til 2.135 manna, þar af 1.007 öryrkja, sem fá nú greiddan ellilífeyri í stað örorku almannatrygginga. Vert er að benda á að þegar öryrkjar ná 67 ára aldri verða þeir fyrir tekjuskerðingu vegna þess að aldursviðbótin svokallaða fellur niður. Hér er því um að ræða hóp sem svo sannarlega þarf á þessari aðstoð að halda. Þetta eru ekki stórar fjárhæðir í samhengi fjáraukalaganna, aðeins 142 millj. kr. sem þarf svo að hægt verði að veita rúmlega 2.000 fátækum eldri borgurum lífsbjörg.

Við getum sett þessa fjárhæð í samhengi. Ég veit ekki betur en að Morgunblaðið hafi fengið 107 millj. kr. fjölmiðlastyrk og hér erum við einungis að tala um 142 millj. kr. sem myndu skipta sköpum fyrir þessa rúmlega 2.000 fátæku eldri borgara. Vert er að benda á að þetta eru að stórum hluta konur sem voru ekki úti á vinnumarkaðnum því þær voru að sjá um heimili og börn fyrir nokkrum áratugum síðan. Það er gríðarlega mikilvægt að við komum til móts við þennan hóp líkt og við höfum gert við öryrkja. Þetta snýst líka um jafnræði. Það að verða allt í einu 67 ára á ekki að þýða það að þú fáir ekki desemberuppbót og þetta er hópur sem verður fyrir tekjuskerðingu eins og hér hefur komið fram.

Við í Flokki fólksins viljum einnig leggja fram breytingartillögu þess efnis að greiddur verði upp rekstrarhalli SÁÁ, en samtökin starfa samkvæmt þjónustusamningi við Sjúkratryggingar Íslands sem þarfnast gagngerrar endurskoðunar. Til þess að uppfylla þjónustukröfur samningsins þurfa SÁÁ að greiða með rekstrinum um 400 millj. kr. á ári. Það er með öllu óásættanlegt að ríkið sé í raun að kaupa sjálfsagða heilbrigðisþjónustu af almannaheillasamtökum á undirverði.

Við leggjum einnig til að veittar verði 150 millj. kr. til góðgerðafélaga sem annast matarúthlutanir. Fátækt fólk finnur verulega fyrir hækkandi verðlagi og sérstaklega um jólin. Því er útlit fyrir mikla aðsókn til þeirra góðgerðafélaga sem veita fólki stuðning í formi matargjafa og úthlutunar á annars konar nauðsynjavörum í aðdraganda jóla.

Ég vænti þess að þingheimur taki vel undir þessa breytingartillögu um að veittar verði 150 millj. kr., sem er ekki stór peningur í samhengi fjárlaga, hvað þá fjáraukalaga.

Mig langar aðeins að fjalla um þær breytingartillögur sem meiri hlutinn hefur lagt fram og þá sérstaklega þær sem snúa að bændum. Hér er um mikilvæga aðstoð til bænda að ræða sem lýtur að gríðarlegri hækkun á fjármagnskostnaði. Við búum við umhverfi þar sem stýrivextir eru 9,25% sem er algjört einsdæmi í þróuðu vestrænu ríki og ég tel að það megi rekja m.a. til hinna verðtryggðu lána og þess að mörg húsnæðislán eru með bundnum vöxtum til lengri tíma. Stýrivextir bíta einfaldlega ekki á þannig lán. Það sýnir ákveðinn kerfisgalla hjá okkur í fjármálakerfinu og stjórn þess. Þetta tengist líka miklum hækkunum og stöðu bænda og ég er þeirrar skoðunar að það þurfi að fara í gagngera endurskoðun á búvörusamningunum. Við eigum við svokallað strúktúrvandamál að etja þegar kemur t.d. að sauðfjárbændum. Hér er um mikilvægan stuðning að ræða og er raunverulega vegna þess ástands sem hér ríkir en þetta er ekki til framtíðar. Það verður að fara í heildarendurskoðun þar sem tekið er tillit til byggðasjónarmiða, búskapar í dreifbýli og þess að sauðfjárræktin er gríðarlega mikilvæg í strjálbýlustu svæðum landsins sem og hefðbundinn búskapur og það þarf að miða við fjölskyldubúið sem við höfum styrkt hér undanfarna áratugi. Ég tek undir þessa tillögu.

Ég hef lokið máli mínu en formaður flokksins, Inga Sæland, mun mæla fyrir breytingartillögunni sérstaklega.