154. löggjafarþing — 49. fundur,  13. des. 2023.

Störf þingsins.

[15:07]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Síðastliðna helgi efndu Samtök aðstandenda og fíknisjúkra til mótmæla hér á Austurvelli. Með mótmælunum vildu Samtökin koma skýrum skilaboðum til stjórnvalda um erfiða stöðu fólks sem glímir við vímuefnavanda. Aðstandendur og fólk með fíknisjúkdóma mótmæla einna helst löngum biðlistum í meðferð og afeitrun. Ég tek þessi mál reglulega upp hér á þinginu og segi það enn og aftur að það er óásættanlegt að fólk með lífshættulegan sjúkdóm komi að lokuðum dyrum í heilbrigðiskerfinu. Við getum ekki sætt okkur við að fólk, ungt fólk, deyi unnvörpum. Við erum með skelfilegar tölur um það. Það blasir við okkur á minningarsíðum Morgunblaðsins.

Hæstv. heilbrigðisráðherra hefur sannarlega tekið fjölmörg jákvæð skref í málaflokknum á þessu kjörtímabili. Hann hefur lagt áherslu á viðhaldsmeðferðir, sett aukna fjármuni í neyslurými og varnir gegn ofskömmtun og við sjáum þess merki í fjárlögum, m.a. með styrkjum til félagasamtaka og áherslunni á baráttuna við ópíóíðafíkn. Stjórnvöld verða samt að gera betur. Takmarkaður áhugi samfélagsins á aðstæðum fólks með vímuefnavanda getur bara skýrst af neikvæðu viðhorfi í garð þessa sjúklingahóps. Þetta er bara eitthvert annað fólk, fólk með áfallasögu, fólk sem er ekki viðbjargandi. En í þessu litla samfélagi okkar eru auðvitað börnin okkar, systkini, foreldrar, frændfólk, vinir, nágrannar. Við þekkjum öll einhvern sem glímir við fíknisjúkdóm og við verðum að leggjast á árarnar við að greiða aðgang þeirra að heilbrigðisþjónustu.

Virðulegur forseti. Samtökin stráðu rósum fyrir framan dyr Alþingis til að minnast þeirra sem hafa fallið frá í baráttunni við fíkn. Takk fyrir þennan áhrifamikla, fallega og táknræna gjörning. Hann snerti mig inn að hjartarótum og þið getið áfram treyst á minn stuðning við baráttu ykkar hér í þinginu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)