154. löggjafarþing — 50. fundur,  14. des. 2023.

Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:32]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra og hv. þingmönnum fyrir þessa umræðu hér í dag. Jólin eru tími sem einkennist af kærleika og hlýju þegar við fögnum endurkomu ljóssins í myrkrinu. Sum fagna einnig fæðingu barns í Betlehem þar sem nú geisar í næsta nágrenni eitt skelfilegasta stríð sem heimsbyggðin hefur orðið vitni að lengi.

Við erum herlaust eyríki langt frá heimsins vígaslóð. Stríðið á Gaza birtist okkur í daglegu lífi sem fyrirsagnir í blöðum, á samfélagsmiðlum og sem fréttir í sjónvarpi. Við sjáum skýrar en nokkru sinni hvaða hörmungar stríð hefur í för með sér. Sérhvert líf er dýrmætt. Sérhver manneskja er einstök. Sérhvert tilgangslaust dauðsfall er harmur heimsins alls. Mörg okkar finna fyrir vanmætti og reiði þegar við finnum ekki kröftum okkar viðnám en horfum á þessar skelfilegu hörmungar dag eftir dag í beinni útsendingu. Við höfum séð ótrúlega magnaða samstöðu fólks um allan heim með þeim sem á um sárt að binda, í raun lýðræði í verki þegar fólk þrýstir á sín stjórnvöld og stjórnvöld hlusta á þau. Það gefur okkur von. Mikilvægt er fyrir okkur öll að hafa augun á lokamarkmiðinu sem er að enda þessi tilgangslausu átök.

Við Íslendingar höfum löngum verið stolt af því að vera friðelskandi þjóð. Við fengum það hlutverk að hýsa friðarljós sem tendrað er ár hvert í minningu manns sem lagði hart að heiminum að ímynda sér frið og við höfum lagt okkur í líma við að beita okkur fyrir friðsamlegum lausnum í hvívetna. Hæstv. forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir hefur verið talsmaður friðar fyrir Íslands hönd hvar sem hún kemur, nú síðast í Genf þar sem hún hitti Riyad al-Maliki, utanríkisráðherra Palestínu.

Virðulegi forseti. Gegndarlausar árásir á saklausa borgara undir því yfirskini að um sjálfsvörn sé að ræða eru óverjandi. Börn eru ekki skotmörk, aldraðir eru ekki skotmörk. Saklaust fólk er ekki skotmörk, blaða- og fréttamenn eru ekki skotmörk. Við fylgjumst öll með þessum skelfilegu atburðum og mörg okkar hugsa hvað við sem þjóð, þátttakendur á alþjóðasviðinu, getum gert til þess að stöðva blóðsúthellingar á almennum borgurum. Það er mikilvægt að við hér á Alþingi leggjum okkar af mörkum, líkt og við gerðum með samþykkt þingsályktunartillögu hv. utanríkismálanefndar um átökin fyrir botni Miðjarðarhafs, eitt örfárra þjóðþinga í heiminum.

Virðulegi forseti. Ísland greiddi á þriðjudag atkvæði með ályktun á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um tafarlaust vopnahlé á Gaza. Ályktunin var samþykkt með 153 atkvæðum og kom í kjölfar þess að Bandaríkin beittu neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna vegna sambærilegrar ályktunar um vopnahlé á þeim vettvangi. Það er óneitanlega óbærileg staða þegar ríki heims reyna í sameiningu að vinna að því að koma á vopnahléi en þó ljós í myrkrinu að fleiri lönd greiddu nú atkvæði með friði en nokkru sinni fyrr, sem má túlka sem von um að alþjóðleg samstaða sé að myndast um að þessu stríði verði að ljúka.

Það er gríðarlega stórt verkefni fyrir heiminn að takast á við þá spurningu hvernig við förum að því að finna friðsamlegar lausnir þegar okkar alþjóðlegu stofnanir virðast þess ekki megnugar. Þeirri umræðu eigum við ekki að skorast undan. Við eigum að leggja okkar lóð á vogarskálarnar og reyna að finna leiðir fyrir alþjóðasamfélagið til að taka á málum eins og þessum, finna aðferðir til að fá stríðsaðila til að láta af gegndarlaust ofbeldi gagnvart saklausu fólki eins og við verðum vitni að á Gaza og raunar víðar í Palestínu. Eina leiðin að varanlegum friði er í gegnum samtal, ekki með sprengjum og átökum. Við verðum að taka skref í átt að varanlegum endalokum þessa stríðs og við verðum að vona og trúa að það sé mögulegt. Það er ljósið í myrkrinu.