154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

skattar og gjöld.

468. mál
[14:22]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir þessa ábendingu sem hefur komið fram hjá hv. þm. Ingu Sæland og óska eftir því að nefndin fari aðeins yfir þetta. Ég hlustaði á skýringu formanns nefndarinnar um að þetta ætti að geta verið einfalt en ég held að það sé bara ágætt að geirnegla þetta þannig að við séum alveg með það á hreinu að við séum ekki að hafa eitthvað af fólki sem við höfum engan vilja til að gera. Ég tek því undir að þetta fari til nefndarinnar aftur og að við klárum þetta. En einhverra hluta vegna hefur þetta farið fram hjá mér og ég ekki gert mér grein fyrir því að þetta gæti verið á þann hátt sem hv. þingmaður er hér að benda á.