154. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2024.

tilhögun þingfundar.

[10:32]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti ráðgerir að gera hádegishlé um klukkan 13:15 í hálfa klukkustund vegna fundar í forsætisnefnd. Einnig vill forseti geta þess að atkvæðagreiðslur um afbrigði og 3. dagskrármálið verða að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma um kl. 11.