154. löggjafarþing — 61. fundur,  31. jan. 2024.

sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

618. mál
[16:03]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir góð orð en jafnframt þakka samstarfið í nefndinni og kannski helst af öllu koma á framfæri þakklæti til Grindvíkinga, til þeirra sem eru að vinna fyrir sveitarfélagið og í þjónustumiðstöðinni hér úti í Tollhúsi og fyrir þeirra samvinnu við bæði Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og innviðaráðuneytið sem skilaði til okkar upplýsingum og minnisblöðum úr þessu samstarfi.