staðfesting kosningar.
Forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur fengið til meðferðar tilkynningar landskjörstjórnar um kosningu Ingerar Erlu Thomsen sem 3. varaþingmanns á lista Samfylkingarinnar – jafnaðarflokks Íslands í Suðurkjördæmi og Guðrúnar Sigríðar Ágústsdóttur sem 2. varaþingmanns á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Nefndin hefur fundað til að fjalla um kosningarnar og kjörgengið og mælir nefndin einróma með staðfestingu kosningar Ingerar Erlu Thomsen og Guðrúnar Sigríðar Ágústsdóttur.