154. löggjafarþing — 70. fundur,  12. feb. 2024.

upplýsing um stöðuna á Suðurnesjum.

[15:52]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Í tilefni af ummælum hv. þingmanns vill forseti geta þess að verið er að reyna að finna form á þá umræðu sem hv. þingmaður gerði hér að umtalsefni og vonir standa til þess að þetta geti farið fram samkvæmt reglum um munnlegar skýrslur á morgun. Nánari upplýsingar um það verða sendar þingmanninum síðar í dag.