154. löggjafarþing — 70. fundur,  12. feb. 2024.

upplýsing um stöðuna á Suðurnesjum.

[15:54]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti ítrekar það sem áður er sagt, að það verður leitast við að skipuleggja umræðu eins og hér hefur verið vikið að á morgun. En auðvitað eru tækifæri þingmanna fjölmörg til þess að taka til máls um einstök atriði að þessu leyti, bæði í fyrirspurnarformi og með öðrum hætti.