154. löggjafarþing — 73. fundur,  15. feb. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

704. mál
[13:40]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir framlagningu þessa máls sem er mikilvægt. Mig langar aðeins að staldra við þar sem ég sá haft eftir ráðherra í fjölmiðlum að það sé að mestu leyti komið til móts við umsagnir sem hafa borist. Ég vil kannski biðja hana um nánari skýringu á því hvernig hún telji að það hafi verið komið til móts við þá sem lögðu fram umsagnir um þetta frumvarp.