154. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2024.

afstaða Sjálfstæðisflokksins til útlendingamála og ráðstafanir varðandi fjölskyldusameiningu fólks frá Gaza.

[15:18]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Eftir orðaskiptin hérna áðan langar mig að leggja til við hæstv. ráðherra að hann leiti ekki í furðulegustu útskýringu eða afsökun sem fram hefur komið um vandræðagang Sjálfstæðisflokksins í útlendingamálum; að það sé allt þinginu að kenna. Ég held að flokkurinn ætti að líta sér nær og velta því fyrir sér hvernig á því standi að hann hafði ekki náð neinu fram þrátt fyrir að hafa verið boðin aðstoð ítrekað. Sjálfstæðisflokkurinn vissi það vel að jafnvel þótt Vinstri grænir legðust gegn litla útlendingamálinu hans þá yrði hægt að ná meiri hluta á þinginu og þeir gerðu að eigin frumkvæði breytingar á málinu, ítrekað, þynntu það út þar til það varð nánast að engu og svo kom hæstv. félagsmálaráðherra og drap það litla sem þó hafði náðst í gegn hjá þeim.

En nú ætla ég að spyrja hæstv. ráðherra út í afstöðu flokksins og hæstv. ráðherra núna og hvaða framhalds sé að vænta. Hæstv. utanríkisráðherra lýsti því nýverið yfir að ekki yrði ráðist í frekari aðgerðir varðandi fjölskyldusameiningar fyrr en búið væri að fara yfir málaflokkinn í heild. Ekkert er að frétta af því. Engu að síður hafa embættismenn nú verið sendir til Kaíró í Egyptalandi og litlum sögum fer af störfum þeirra þar. Eins og hæstv. ráðherra hefur nefnt er Ísland eina landið sem hefur ráðist í fjölskyldusameiningar eftir hryðjuverkin 7. október og ég hef áður spurt hæstv. ráðherra þessarar spurningar og ítreka hana nú því að svör hafi ekki borist: Hvaða öryggisráðstafanir hafa íslensk stjórnvöld gert af þessu tilefni? Ég hef nefnt dæmið af Þjóðverjum sem hugðust taka á móti allt að 200 starfsmönnum þýskra hjálparstofnana af Gaza. Þeir voru komnir til Kaíró en eftir viðtöl var einungis helmingnum hleypt til Þýskalands, hinir þóttu of hættulegir. Til hvaða öryggisráðstafana grípa íslensk stjórnvöld nú samhliða ákvörðunum um fjölskyldusameiningar og flutning fólks hingað?