154. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

717. mál
[16:00]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ekki með því að hækka skatta en með því að taka erlend lán. Það er svarið sem við fáum. Vandamálið er það, hæstv. fjármálaráðherra, að það þarf að endurgreiða þetta lán með vöxtum og nú í ár munum við greiða í afborganir af vöxtum, ef ég man rétt, um 117 milljarða kr. Hérna erum við að auka erlendar lántökur til að standa á bak við Grindvíkinga. Það er alveg klárt mál að annaðhvort þurfum við að fara í mikið aðhald í ríkisfjármálunum eða hækka skatta til að afla tekna til að greiða þennan pening. Það er miklu betra að hækka skatta, taka bankaskattinn, auka veiðileyfagjaldið og láta breiðu bökin í samfélaginu taka þátt í að greiða þessa 30 milljarða heldur en að vera að dæla inn í hagkerfið 30 milljörðum kr. sem eykur verðbólguna eins og enginn væri morgundagurinn. Við erum í dag með stýrivexti upp á 9,25% og það eru fjölskyldur í landinu sem búa við það að afborganir af lánum hafa hækkað margfalt, um hundruð þúsunda. Þessi viðbótarpeningur inn í íslenskt hagkerfi mun ekki slá á verðbólguna, hann mun auka á hana. Seðlabankinn lækkaði ekki stýrivexti síðast, þeir eru 9,25%, og það er fyrirsjáanlegt að þessir peningar sem koma inn í hagkerfið muni leiða til þess að Seðlabanki Íslands fari ekki í lækkunarferlið nægilega snemma. Það mun bitna á fjölskyldum í landinu um tugi milljarða króna, líklega hærri fjárhæð en þessa 30 milljarða. Þess vegna skil ég ekki þessa fjármögnun, að taka erlent lán og dæla því inn í hagkerfið við núverandi aðstæður. Það verður annaðhvort að draga úr ríkisútgjöldum og fá pening þannig til að standa á bak við Grindvíkinga eða hækka skatta. Ég get ekki séð annað. Það er ekki hægt að taka bara lán út í hið óendanlega vegna þess að framtíðarkynslóðir þurfa að borga það. Svo einfalt er það. Þetta skilja allir sem kunna eitthvað í heimilisbókhaldi. Ég get ekki séð að það sé agi í ríkisfjármálum að koma hérna upp í pontu og segja bara: Ég er á móti því að hækka skatta. Hvaðan eiga peningarnir að koma? Það þarf að borga þetta seinna. Hvers vegna í ósköpunum er verið að auka þensluáhrif með þessari fjármögnun?