154. löggjafarþing — 75. fundur,  20. feb. 2024.

störf þingsins.

[13:54]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Hér á landi hefur ÁTVR einkaleyfi til smásölu áfengis. Einkasölufyrirkomulag áfengis á smásölustigi er hér liður í forvarnastefnu eins og víðar um lönd. Markmið laga um verslun með áfengi og tóbak er m.a. að skilgreina umgjörð um smásölu áfengis og heildsölu tóbaks sem byggist á bættri lýðheilsu, samfélagslegri ábyrgð og vernd ungs fólks.

Í Svíþjóð er þetta sambærilegt og Systembolaget sér um söluna. Þar eins og hér hafa risið álita- og ágreiningsmál vegna netsölu. Í júlí 2023 féll dómur í hæstarétti Svíþjóðar sem er áhugaverður í því samhengi. Systembolaget höfðaði mál gegn fyrirtækjum í netsölu. Í málinu var deilt um hvort fyrirkomulag fyrirtækjanna á sölu áfengis væri í trássi við einkarétt eða hvort um væri að ræða einkainnflutning einstaklinga á áfengi frá öðru landi innan ESB sem væri heimill samkvæmt sænskum áfengislögum eins og þeim íslensku.

Niðurstaða Hæstaréttar var sú að einkainnflutningur sænskra neytenda á áfengi frá Danmörku væri heimill en athyglisvert er að skoða á hverju sú niðurstaða byggist en það var einkum að áfengið væri selt af dönsku félagi til sænskra neytenda af lager sem væri staðsettur í Danmörku og flutt inn til Svíþjóðar af óháðum flutningsaðila, danska félagið sem var seljandinn starfaði sannarlega í Danmörku og var ekki með starfsemi í Svíþjóð og félögin stunduðu ekki beina sölustarfsemi í Svíþjóð.

Það er ljóst af því að fyrirkomulag netverslunar með áfengi á Íslandi er í mörgum atriðum frábrugðið þessu, og í mörgum tilfellum, og mörg dæmi eru um að hún brjóti flestar ef ekki allar þessar forsendur og því vandséð að sú netsala falli undir undanþáguákvæðið.