154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

704. mál
[20:29]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég tek heils hugar undir orð hæstv. forsætisráðherra hér áðan en vildi sem nefndarmaður í efnahags- og viðskiptanefnd koma hingað upp og segja að við í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði styðjum þetta mál sem og breytingartillögur meiri hlutans. Ég vil líkt og aðrir taka undir það að vinnan við þetta risastóra mál hefur verið krefjandi í nefndinni enda að mörgu að huga. En góðar umræður og samheldni og skilningurinn og sýnin á það hversu mikilvægt málið er hefur haft sitt að segja. Ég vona að við höldum áfram að vinna svona í þeim málum sem lúta að Grindavík og aðstæðum íbúanna þar, hér eftir sem hingað til.