154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

varamenn taka þingsæti.

[15:02]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hafa bréf frá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur og Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um að þær verði fjarverandi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Pírata í Suðvesturkjördæmi, Eva Sjöfn Helgadóttir, og 2. varamaður á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll.

Eva Sjöfn Helgadóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju