154. löggjafarþing — 80. fundur,  5. mars 2024.

Störf þingsins.

[13:46]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það var vissulega áhugavert að fylgjast með umræðu um útlendingamál hér í þinginu í gærkvöldi og sérstaklega að bera það saman við umræðuna á síðasta ári, fyrir u.þ.b. ári. Mest áberandi í því var auðvitað sá mikli viðsnúningur sem hefur orðið á málflutningi hv. þingmanna úr Viðreisn og svo sem aumlegar skýringar á breyttri afstöðu. Hjá hv. þingmönnum Samfylkingarinnar kemur fram augljós ágreiningur innan flokksins og verður fróðlegt að fylgjast með því á næstu vikum hvernig afstaða þeirra verður til þessa mikilvæga máls sem er fram komið.

En dropinn holar steininn og við í Sjálfstæðisflokknum höfum aldrei gefist upp við að ná fram breytingum á þessu máli. Það tókst í fyrra. Nú erum við í kafla tvö og við fögnum auðvitað stuðningi þeirra þingmanna sem tjáðu sig hér og bjóðum þá velkomna um borð á vegferð Sjálfstæðisflokksins í málaflokki útlendingamála.

Ég hef áhyggjur af afstöðu og málflutningi þingmanna og hæstv. ráðherra Vinstri grænna. Ég heyri að forsætisráðherra segir mikilvægt að nálgast Norðurlöndin í regluverki. Það er sama nálgun sem við Sjálfstæðismenn erum með, en á sama tíma talar félagsmálaráðherra um það að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins séu stöðugt að stilla Vinstri grænum upp við vegg í þessum mikilvæga málaflokki. Ég óttast tafaleiki, virðulegur forseti, við vinnslu málsins. Það er að mínu mati ekki í boði að ekki verði brugðist við því ástandi núna með því að breyta lögunum á þessu kjörtímabili, á þessu þingi. Það er ekki svigrúm, að mínu mati, til frekari málamiðlana um þetta mál. (Forseti hringir.) Þetta eru allt saman mjög brýnar breytingar og í einhverjum tilfellum þyrfti eflaust að ganga lengra.