154. löggjafarþing — 83. fundur,  11. mars 2024.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:04]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá matvælaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 834, um endurnýtingu örmerkja, frá Njáli Trausta Friðbertssyni. Þá hafa borist bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 918, um lífeyri almannatrygginga, frá Birni Leví Gunnarssyni, og á þskj. 928, um kostnað vegna skemmda á húsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, frá Birgi Þórarinssyni.