154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

varamenn taka þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hafa bréf frá Eyjólfi Ármannsyni, Ingibjörgu Isaksen, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur um að þau verði fjarverandi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi 4. varamaður á lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, Sigurjón Þórðarson, en varamenn ofar á lista hafa boðað forföll, 3. varamaður á lista Framsóknarflokks í Norðausturkjördæmi, Kristinn Rúnar Tryggvason, en 1. og 2. varamaður hafa boðað forföll, 1. varamaður á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Jón Steindór Valdimarsson, og 4. varamaður á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, Rafn Helgason, en varamenn ofar á lista hafa boðað forföll.

Sigurjón Þórðarson og Jón Steindór Valdimarsson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnir velkomnir til starfa að nýju.