154. löggjafarþing — 88. fundur,  19. mars 2024.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:31]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1034, um áfengis- og vímuefnavanda eldri borgara, frá Guðrúnu Sigríði Ágústsdóttur. Einnig hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1037, um eftirlit með framkvæmd ákæruvalds, frá Eyjólfi Ármannssyni. Þá hefur borist bréf frá matvælaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1205, um kvótasettar nytjategundir sjávar ,frá Ingu Sæland.