154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

sóttvarnalög.

867. mál
[17:09]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég flyt hér frumvarp til nýrra sóttvarnalaga, heildarlaga um sóttvarnir, sem ætlað er að leysa af hólmi sóttvarnalög nr. 19/1997. Hér er um að ræða þriðju framlagningu á þessu frumvarpi, eilítið breyttu hverju sinni. Þann 18. júní 2021 skipaði þáverandi heilbrigðisráðherra starfshóp sem falið var að skrifa drög að frumvarpi til heildarlaga um sóttvarnir og skilaði hópurinn drögum að frumvarpi þann 1. febrúar 2022. Starfshópinn skipuðu fulltrúar helstu aðila sem hlutverki hafa að gegna þegar kemur að opinberum sóttvarnaráðstöfunum. Í starfshópnum sátu aðilar frá heilbrigðisráðuneytinu, embætti landlæknis, dómsmálaráðuneytinu, sóttvarnalækni, Landspítala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sóttvarnaráði og embætti ríkislögreglustjóra.

Frumvarpið sem ég mæli hér fyrir í dag er samið af þessum starfshópi og var lagt fram á 152. löggjafarþingi, fór í gegnum eina umræðu þá en náði ekki fram að ganga. Við umræðuna komu fram sjónarmið um frekari aðkomu þings hvað varðar ákvarðanir sem skerða athafnafrelsi fólks á grundvelli sóttvarnalaga. Til upprifjunar, virðulegi forseti, þá var þetta mikið til umræðu hér í gegnum faraldurinn, þegar heilbrigðisráðherra gaf skýrslu, og enn fremur við þær breytingar sem við gerðum á sóttvarnalögum 2021. Málið gekk á sínum tíma til hv. velferðarnefndar sem fékk 12 umsagnir frá ýmsum aðilum um frumvarpið en nefndin náði ekki að ljúka umfjöllun sinni þá og var frumvarpið endurflutt á 153. löggjafarþingi með breytingum á viðeigandi ákvæðum frumvarpsins, m.a. í ljósi umsagnar Persónuverndar til hv. velferðarnefndar. Enn fremur var ákvæði um skipan farsóttanefndar breytt, m.a. í ljósi umsagnar sóttvarnalæknis um að þörf væri á fleiri fagaðilum með sérþekkingu á smitsjúkdómum og faraldsfræði í nefndina og umsagnar Sjúkrahússins á Akureyri um að í farsóttanefnd ættu sæti aðilar af landsbyggðinni. Að lokum var lögð til ein breyting á ákvæði um gildistöku laganna. Frumvarpið fór í gegnum eina umræðu á Alþingi en náði ekki fram að ganga og er því, eins og ég sagði hér í upphafi, lagt fram í þriðja sinn.

Virðulegi forseti. Með nýjum lögum er ætlunin að skýra betur þau úrræði sem sóttvarnalæknir og heilbrigðisráðherra geta gripið til vegna hættu á farsóttum til eða frá Íslandi innan lands og vegna hættu á útbreiðslu smits frá einstaklingum. Markmið lagasetningarinnar er að vernda almannaheill, þ.e. samfélagið og líf og heilsu einstaklinga gegn smitsjúkdómum og annarri vá sem lögin taka til. Einnig er verið að skýra þær heimildir sem stjórnvöld hafa til opinberra sóttvarnaráðstafana í samræmi við kröfur lögmætisreglunnar og lagaáskilnaðarreglna stjórnarskrárinnar og jafnframt að einfalda og skýra stjórnsýslu sóttvarna.

Gildandi sóttvarnalög eru frá árinu 1997. Töluverðar breytingar voru gerðar á lögunum árið 2021 þar sem nauðsynlegt þótti að skýra ýmis ákvæði laganna um opinberar sóttvarnaráðstafanir í ljósi fenginnar reynslu af heimsfaraldrinum Covid 19. Við endurskoðunina var sérstaklega horft til álitsgerðar Páls Hreinssonar, sem hann vann að beiðni stjórnvalda, sem fjallar um valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarnaráðstafana í ljósi meginreglna stjórnsýsluréttar og mannréttindaákvæða. Endurskoðun ákvæða stjórnsýslu sóttvarnaráðs var ekki á verksviði starfshópsins sem vann að endurskoðuninni. Hópurinn benti engu að síður á að tilefni væri til slíkrar endurskoðunar í tengslum við áformaða heildarendurskoðun laganna þegar sæi fyrir endann á heimsfaraldri. Almennt má segja að gildandi sóttvarnalög hafi reynst okkur vel í heimsfaraldri en nú hefur gefist færi á að líta yfir farinn veg, einfalda og skýra tiltekna þætti í stjórnsýslu sóttvarna og setja heimildir til sóttvarnaráðstafana fram með einfaldari hætti.

Virðulegi forseti. Til upprifjunar: Þegar við fórum í gegnum þessar lagabreytingar 2021 þá var þetta mjög til umræðu í þinginu og í hv. velferðarnefnd og ég vil meina að frumvarpið hafi fengið að þroskast síðan en það er að fara hér í gegn í þriðja sinn. Það er, getum við sagt, í ætt við kjarna nefndarálits hv. velferðarnefndar á þessum tíma þar sem ekki þótti ráðlegt að fara í meginbreytingar á stjórnsýsluþætti laganna í miðjum faraldri.

Virðulegi forseti. Ég ætla að rekja helstu atriði frumvarpsins og sjónarmið að baki þeim. Í fyrsta lagi er frumvarpinu ætlað að tryggja þau réttindi sem varin eru af stjórnarskrá með því að kveða skýrt á um til hvaða ráðstafana megi grípa til að skerða réttindi, í hvaða tilvikum og með tilliti til meðalhófssjónarmiða. Þannig er markmiðið að tryggja enn betur að slíkar skerðingar styðjist við viðhlítandi lagaheimild og þær séu ekki framkvæmdar nema í þágu almannahagsmuna eða til verndar heilsu eða réttindum annarra. Það er mikilvægt að fram komi að heimildir í sóttvarnalögum til skerðingar á réttindum, samkvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu, hafa þann tilgang að tryggja líf og heilsu fólks sem eru veigamestu verndarhagsmunir samfélagsins og njóta verndar stjórnarskrár og mannréttindasáttmálans. Jafnframt hefur verið talið að á stjórnvöldum hvíli frumkvæðisskylda að stjórnlögum til að bregðast við til verndar lífi og heilsu fólks ef ljóst er að bein og fyrirsjáanleg ógn steðji að því.

Í fyrrnefndri álitsgerð Páls Hreinssonar um heimildir til sóttvarnaráðstafana segir m.a. að opinberar sóttvarnaráðstafanir geti takmarkað mannréttindi sem vernduð eru af mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar. Í sumum tilvikum sé nægilegt að slíkar takmarkanir styðjist við sett lög svo að þær teljist heimilar, en í öðrum tilvikum verði þær að vera í þágu almannahagsmuna til verndar heilsu eða vegna réttinda annarra svo að þær séu heimilar. Að lokum segir að þeir almannahagsmunir að verjast farsóttum til verndar lífi og heilsu manna teljist falla undir þær undanþágur sem kveðið er á um í mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar. Þar er m.a. vísað til 1. mgr. 67. gr. um frelsissviptingu, einnig takmarkana á friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu, sem fram koma í 71. gr., og takmarkana á atvinnufrelsi sem koma fram í 75. gr. stjórnarskrárinnar. Sama má segja um ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Í öðru lagi er í frumvarpinu lagt til að sett verði sérstakt markmiðsákvæði í sóttvarnalög sem og sérstakt ákvæði um þá sjúkdóma sem lögin taka til. Lögð er til ákveðin stigskipting sjúkdóma þar sem í fyrsta lagi eru tilteknir smitsjúkdómar, í öðru lagi alvarlegir sjúkdómar og í þriðja lagi samfélagslega hættulegir sjúkdómar. Þá er lagt til að heimildir stjórnvalda til sóttvarnaráðstafana skuli taka mið af framangreindri stigskiptingu sem er sambærilegt því sem gildir í Danmörku. Þannig megi einungis grípa til veigamestu ráðstafananna þegar um samfélagslega hættulegan sjúkdóm er að ræða.

Í þriðja lagi eru lagðar til breytingar á stjórnsýslu sóttvarna. Þannig er lagt til að sóttvarnalæknir verði skipaður af ráðherra líkt og landlæknir og aðrir forstöðumenn stofnana og að ábyrgð hans á framkvæmd sóttvarna heyri beint undir yfirstjórn ráðherra en ekki landlækni. Enn fremur verði sett á laggirnar nýtt fjölskipað stjórnvald, þ.e. sérstök farsóttanefnd. Hlutverk hennar verði að gera tillögu til ráðherra um opinberar sóttvarnaráðstafanir vegna samfélagslega hættulegra sjúkdóma og tillögu um skilgreiningu sjúkdóms samkvæmt stigskiptingu laganna, þ.e. hvort sjúkdómur falli undir að vera samfélagslega hættulegur. Samkvæmt frumvarpinu verður sóttvarnaráð lagt niður og verkefni ráðsins færð til sóttvarnalæknis og farsóttanefndar. Enn fremur er lögð til sérstök heimild sóttvarnalæknis til að kveðja sér til ráðgjafar sérfræðinga vegna þeirra verkefna sem falla undir hlutverk sóttvarnalæknis og þar er m.a. verið að mæta umsögnum um málið um þá sérfræðiþekkingu sem þarf til að skipa slíka nefnd.

Í fjórða lagi eru ýmsar breytingar gerðar frá gildandi lögum á þeim kafla frumvarpsins sem fjallar um opinberar sóttvarnaráðstafanir, þar á meðal er felld brott skylda einstaklings sem greinist með tilkynningarskyldan sjúkdóm til að fara að fyrirmælum heilbrigðisstarfsfólks um meðferð en áfram verður skylt að hlíta fyrirmælum um ráðstafanir til að fyrirbyggja smit. Hér er um að ræða breytingu, virðulegi forseti, frá því að málið var síðast lagt fram. Einstök ákvæði eru brotin upp og framsetning þeirra er einfölduð. Jafnframt eru settar tilteknar skorður við tímalengd opinberra sóttvarnaráðstafana. Síðast en ekki síst er hér lagt til aðkomu- og eftirlitshlutverk Alþingis að opinberum sóttvarnaráðstöfunum, það verður styrkt, og loks að viðurlagaákvæði laganna verði uppfært í samræmi við löggjafarþróun síðari ára.

Virðulegi forseti. Ég sagði hér áðan að ég teldi að gildandi sóttvarnalög hefðu reynst okkur vel. Í heimsfaraldri Covid-19 reyndi á flesta þætti laganna. Eins og ég gat um áðan voru tilteknar breytingar sem þóttu mikilvægar og nauðsynlegar gerðar á þeim árið 2021. Það má öllum vera ljóst að fenginni reynslu hve beiting sóttvarnalaga getur haft víðtæk áhrif á daglegt líf fólksins í landinu og raunar alla þætti samfélagsins, innviði þess, atvinnulíf, menningarlíf og svo mætti áfram telja. Við getum haft hugfast hver markmið sóttvarnalaga eru og hve mikilvægt er að þau þjóni tilgangi sínum þegar á reynir, þ.e. að vernda almannaheill, samfélagið og líf og heilsu þeirra einstaklinga sem samfélagið byggja. Löggjöf um sóttvarnir snertir á nánast öllum þáttum samfélagsins þegar á reynir og beiting laganna gengur í mörgum tilvikum nærri stjórnarskrárvörðum mannréttindum okkar. Hlutverk okkar er að gera sóttvarnalöggjöfina sem besta úr garði til að tryggja að markmiðum laganna verði sem best náð en jafnframt að ekki sé gengið nær stjórnarskrárvörðum mannréttindum en nauðsyn krefur.

Í þessu samhengi vil ég leyfa mér að segja hér í lok ræðu minnar að ég held að það sé mikilvægt — þetta er stórt mál, þegar við tölum um réttindi og mannréttindi og stjórnarskrárvarin réttindi sem við göngum á þegar aðstæður verða mjög alvarlegar — að einhver tími fái að líða og málið fái umfjöllun hér á Alþingi og þroskist hér eins og ég vil meina að hafi gerst á milli umræðna, á milli þess að málin hafa verið lögð fram.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir meginatriðum frumvarpsins og þeim breytingum sem hafa orðið á milli framlagninga þess, en málið er nú lagt fram í þriðja sinn. Ég leyfi mér því að leggja til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umræðu.