154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

varamaður tekur þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur um að hún verði fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Pírata í Suðvesturkjördæmi, Indriði Ingi Stefánsson, en 1. varamaður hefur boðað forföll. Indriði Ingi Stefánsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.