154. löggjafarþing — 100. fundur,  22. apr. 2024.

lagning Sundabrautar.

[15:31]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka enn hv. þingmanni. Varðandi drauma hv. þingmanns um það að flýta Sundabraut þá skil ég það vel að hann vilji sjá þetta gerast hratt og vel og sannarlega hefur umfjöllun um Sundabraut verið á dagskrá stjórnmálanna um áratugaskeið. En nú er svo komið að það er komið á dagskrá að undirbúningi ljúki í tæka tíð fyrir árið 2026. Við viljum líka gera þetta vel, virðulegi forseti, og ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður sé mér sammála um það og til þess að undirbúningurinn sé fullnægjandi og til þess að framkvæmdin sé þannig að við séum að ráðstafa þessu fé með skynsemi og yfirvegun að leiðarljósi þá tekur framkvæmdin þessi fimm ár. Ég ætla það að við hv. þingmaður séum sammála um mikilvægi þess.