02.03.1923
Neðri deild: 10. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í B-deild Alþingistíðinda. (293)

29. mál, ritsíma og talsímakerfi

Fjármálaráðherra (MagnJ):

Þessi fyrirspurn frá háttv. 1. þm. Árn. (EE) á í rauninni að ganga til hæstv. atvrh., en nú sem stendur er hann staddur í efri deild, og getur því eigi svarað. Jeg ætla mjer ekki að svara fyrir hann, en aðeins vildi jeg geta þess, að þegar eigi er gert ráð fyrir í fjárlögunum, að lagðir verði fleiri símar, býst jeg við, að það verði að taka sem í fullri alvöru talað. (MG: Hví hefir stjórnin þá gert það). Því verður hæstv. atvrh. að svara. Fyrir þessari línu er hvergi gert ráð í fjárlögunum, og mjer er ókunnugt um, hvaðan það fje ætti að koma.