20.02.1923
Neðri deild: 3. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 532 í B-deild Alþingistíðinda. (599)

1. mál, fjárlög 1924

Fjármálaráðherra (MagnJ):

Háttv. 3. þm. Reykv. (JÞ) hefir enn misheyrst. Jeg sagði ekki, að hann væri staddur í vindmylnum, heldur að hann væri að berjast við vindmylnur. Annars vil jeg minna hv. þm. á, að sagan, er jeg tók samlíkinguna úr, Don Quixote, gerist ekki í Danmörku, heldur suður á Spáni.