08.03.1923
Efri deild: 12. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1208 í B-deild Alþingistíðinda. (976)

26. mál, skiptimynt

Fjármálaráðherra (MagnJ):

Jeg þakka nefndinni meðferð frv. og held, að gott hafi verið, að það var athugað þar, þó ekki hafi verið ástæða til að breyta því. Jeg vil sjerstaklega taka undir með nefndinni um, að svo beri að líta á, sem stjórnin hafi heimild til að gefa út meira af slíkum peningum, ef þess gerist þörf, sem þó varla þarf að búast við fyrst um sinn.