21.12.1973
Sameinað þing: 43. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1689 í B-deild Alþingistíðinda. (1581)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Forseti (Eysteinn Jónsson):

Samkv. forsetabréfi því, sem hæstv. forsrh. hefur nú kunngert, tekur Alþ. nú til starfa á ný og hefjast fundir þess, og er fundur settur í Sþ. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir hans í garð okkar þm. og starfsfólks þingsins. Jafn framt vil ég óska öllum hv. þm. og hæstv. ríkisstj. gleðilegs nýárs og þakka fyrir samstarfið á liðna árinu og láta í ljós þá von, að vel megi takast á þessu þingi, þann hluta, sem eftir er að halda af því.