Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 853, 130. löggjafarþing 550. mál: fjármálafyrirtæki (stofnfjárhlutur í sparisjóði, stjórn sjálfseignarstofnunar o.fl.).
Lög nr. 4 6. febrúar 2004.
Sjálfseignarstofnun fer þó með atkvæðisrétt í samræmi við hlutafjáreign sína.
Samruni sparisjóðs við annað fyrirtæki eða einstaka rekstrarhluta þess er því aðeins heimill að sparisjóðnum hafi áður verið breytt í hlutafélag samkvæmt ákvæðum VIII. kafla, nema þegar um er að ræða samruna tveggja eða fleiri sparisjóða sem ekki hefur verið breytt í hlutafélag eða hlutafélög.
Þingskjal 853, 130. löggjafarþing 550. mál: fjármálafyrirtæki (stofnfjárhlutur í sparisjóði, stjórn sjálfseignarstofnunar o.fl.).
Lög nr. 4 6. febrúar 2004.
Lög um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
1. gr.
B-liður 2. mgr. 70. gr. laganna orðast svo: að sýnt sé fram á að öflun stofnfjárhlutarins sé liður í eflingu samvinnu milli sparisjóða í landinu eða sparisjóða innan Evrópska efnahagssvæðisins.2. gr.
2. mgr. 75. gr. laganna orðast svo:Sjálfseignarstofnun fer þó með atkvæðisrétt í samræmi við hlutafjáreign sína.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 76. gr. laganna:- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fyrir fund stofnfjáreigenda skv. 1. mgr. 73. gr. verða engar skuldbindandi ákvarðanir teknar fyrir hönd sjálfseignarstofnunarinnar.
- 2. og 3. mgr. orðast svo:
Fyrir fund stofnfjáreigenda skv. 1. mgr. 73. gr. skal sparisjóðurinn hafa aflað tilnefninga skv. 2. mgr. þessarar greinar.
4. gr.
2. mgr. 101. gr. laganna orðast svo:Samruni sparisjóðs við annað fyrirtæki eða einstaka rekstrarhluta þess er því aðeins heimill að sparisjóðnum hafi áður verið breytt í hlutafélag samkvæmt ákvæðum VIII. kafla, nema þegar um er að ræða samruna tveggja eða fleiri sparisjóða sem ekki hefur verið breytt í hlutafélag eða hlutafélög.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði 3. gr. taka þó ekki til sparisjóða þar sem stofnfjáreigendafundur hefur þegar tekið ákvörðun um hlutafélagavæðingu skv. 73. gr. laganna.Samþykkt á Alþingi 5. febrúar 2004.