Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 535, 139. löggjafarþing 336. mál: úrvinnslugjald (framlenging gildistíma).
Lög nr. 157 28. desember 2010.

Lög um breytingu á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002, með síðari breytingum.


1. gr.

     Í stað dagsetningarinnar „1. janúar 2011“ í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða I í lögunum kemur: 1. janúar 2012.

2. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2011.

Samþykkt á Alþingi 15. desember 2010.