Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 830, 141. löggjafarþing 303. mál: sjúkratryggingar (samningar sjúkratryggingastofnunar).
Lög nr. 131 28. desember 2012.
Ráðherra er heimilt að setja nánari ákvæði um gerð samninga skv. 2. mgr. í reglugerð. Þar skal kveðið á um tegund og umfang þeirrar heilbrigðisþjónustu sem sjúkratryggingastofnunin semur um, m.a. um heilbrigðisþjónustu á heilbrigðisstofnunum í eigu ríkisins.
Þingskjal 830, 141. löggjafarþing 303. mál: sjúkratryggingar (samningar sjúkratryggingastofnunar).
Lög nr. 131 28. desember 2012.
Lög um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum (samningar sjúkratryggingastofnunarinnar).
1. gr.
Við 39. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Ráðherra er heimilt að setja nánari ákvæði um gerð samninga skv. 2. mgr. í reglugerð. Þar skal kveðið á um tegund og umfang þeirrar heilbrigðisþjónustu sem sjúkratryggingastofnunin semur um, m.a. um heilbrigðisþjónustu á heilbrigðisstofnunum í eigu ríkisins.
2. gr.
2. málsl. 2. mgr. 56. gr. laganna orðast svo: Enn fremur koma ákvæði IV. kafla til framkvæmda eigi síðar en 1. janúar 2015 að því er varðar samninga við sveitarfélög og aðra er reka hjúkrunarheimili.3. gr.
Í stað orðanna „1. janúar 2013“ í 1. málsl. ákvæðis til bráðabirgða IV í lögunum kemur: 1. janúar 2015.4. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2013.Samþykkt á Alþingi 21. desember 2012.