Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1410, 151. löggjafarþing 642. mál: fjármálafyrirtæki (innleiðing, endurbótaáætlanir).
Lög nr. 44 19. maí 2021.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að veita litlum og einföldum fjármálafyrirtækjum undanþágur frá upplýsingagjöf skv. 18. gr. og gagnaskilum skv. a-lið 2. mgr. 117. gr. b.
IX. kafli A um endurbótaáætlun gildir ekki um Byggðastofnun og Lánasjóð sveitarfélaga ohf.
Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast ákvæði 1.–4. gr. gildi 28. júní 2021.
Þingskjal 1410, 151. löggjafarþing 642. mál: fjármálafyrirtæki (innleiðing, endurbótaáætlanir).
Lög nr. 44 19. maí 2021.
Lög um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002 (innleiðing, endurbótaáætlanir).
1. gr.
Í stað orðanna „hæfu fjármagni“ í 29. tölul. 1. mgr. 1. gr. a laganna kemur: þætti 1, sbr. 84. gr. a, 84. gr. b og 85. gr.2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 30. gr. laganna:- Í stað orðanna „hæfu fjármagni“ fimm sinnum í greininni kemur: þætti 1.
- Í stað tilvísunarinnar „84. gr., 84. gr. a – 84. gr. f og 85. gr.“ í 1. mgr. kemur: 84. gr. a, 84. gr. b og 85. gr.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 85. gr. laganna:- Við c-lið bætist: að frátöldum varfærnislega metnum hugbúnaðareignum sem falla ekki í virði vegna skila- eða slitameðferðar fjármálafyrirtækis.
- Við bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
- hluta fjárhæðar vegna áhættuskuldbindinga í vanskilum sem hvorki hefur verið mætt með varúðarniðurfærslum né telst nægjanlega tryggður að því marki sem greinir í reglugerð sem ráðherra setur á grundvelli 117. gr. a,
- mismun á núvirði ábyrgðar sem fyrirtækið hefur veitt á virði hlutdeildarskírteina og hluta í sjóðum um sameiginlega fjárfestingu annars vegar og markaðsvirði hlutdeildarskírteinanna og hlutanna hins vegar hafi fyrirtækið ekki þegar greint frá rýrnun á almennu eigin fé þáttar 1 af þessum sökum.
4. gr.
Við 107. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Fjármálaeftirlitinu er heimilt að veita litlum og einföldum fjármálafyrirtækjum undanþágur frá upplýsingagjöf skv. 18. gr. og gagnaskilum skv. a-lið 2. mgr. 117. gr. b.
5. gr.
Við 116. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:IX. kafli A um endurbótaáætlun gildir ekki um Byggðastofnun og Lánasjóð sveitarfélaga ohf.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 117. gr. b laganna:- Orðið „og“ í lok c-liðar 2. mgr. og g-liðar 3. mgr. fellur brott.
- Við 2. mgr. bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
- verklag og form fyrir samráð viðeigandi lögbærra yfirvalda varðandi yfirtöku á virkum eignarhlutum, sbr. VI. kafla,
- útlistanir í tengslum við áhættuþætti í starfsemi fjármálafyrirtækja, sbr. 78. gr. a – 78. gr. i.
- Við 3. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
- afmörkun á kerfislega mikilvægu fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu, sbr. 52. gr. e.
7. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast ákvæði 1.–4. gr. gildi 28. júní 2021.
Samþykkt á Alþingi 11. maí 2021.