Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 290, 152. löggjafarþing 137. mál: tekjuskattur (samsköttun).
Lög nr. 132 30. desember 2021.
Þingskjal 290, 152. löggjafarþing 137. mál: tekjuskattur (samsköttun).
Lög nr. 132 30. desember 2021.
Lög um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 (samsköttun).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 55. gr. laganna:- Í stað 2. málsl. 1. mgr. koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Sama gildir um innlend dótturfélög, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 2. gr., og fastar starfsstöðvar, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 3. gr., hlutafélaga og einkahlutafélaga sem skráð eru í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða í Færeyjum. Þá geta innlend dótturfélög undir eignarhaldi samstæðufélaga í öðrum aðildarríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu eða í Færeyjum notið samsköttunar og skal þá tekjuskattur af sameiginlegum tekjuskattsstofni hinna innlendu félaga, sbr. 3. mgr., lagður á eitt þeirra. Heimildir skv. 2. og 3. málsl. eiga aðeins við ef sýnt er fram á að öll skilyrði ákvæðisins séu uppfyllt.
- 5. mgr. orðast svo:
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2022 og koma til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda árið 2023 vegna tekna ársins 2022 og eigna í lok þess árs.Samþykkt á Alþingi 28. desember 2021.