Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1272, 152. löggjafarþing 471. mál: loftslagsmál (leiðrétting o.fl.).
Lög nr. 47 22. júní 2022.
Losun gróðurhúsalofttegunda og upptaka sem fellur undir flokk landnotkunar, breyttrar landnotkunar og skógræktar hjá milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar skal ekki leiða af sér nettólosun á tímabilinu 2021–2025 annars vegar og 2026–2030 hins vegar til að tryggja framlag Íslands til sameiginlegs markmiðs Íslands, Noregs og Evrópusambandsins.
Þingskjal 1272, 152. löggjafarþing 471. mál: loftslagsmál (leiðrétting o.fl.).
Lög nr. 47 22. júní 2022.
Lög um breytingu á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012 (leiðrétting o.fl.).
1. gr.
1. mgr. 6. gr. b laganna orðast svo:Losun gróðurhúsalofttegunda og upptaka sem fellur undir flokk landnotkunar, breyttrar landnotkunar og skógræktar hjá milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar skal ekki leiða af sér nettólosun á tímabilinu 2021–2025 annars vegar og 2026–2030 hins vegar til að tryggja framlag Íslands til sameiginlegs markmiðs Íslands, Noregs og Evrópusambandsins.
2. gr.
Við 27. gr. a laganna bætist: auk jöfnunarskyldu flugrekenda.3. gr.
Við 47. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1416 frá 17. júní 2021 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB að því er varðar að útiloka flug sem kemur frá Bretlandi frá viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir.4. gr.
Við 2. mgr. II. viðauka við lögin bætist nýr stafliður, svohljóðandi: flugferðir frá flugvöllum í Bretlandi til flugvalla á Evrópska efnahagssvæðinu.5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 14. júní 2022.