Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1402, 152. löggjafarþing 18. mál: tekjustofnar sveitarfélaga (framlög úr fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga).
Lög nr. 84 28. júní 2022.
Þrátt fyrir ákvæði 13. gr. b er Jöfnunarsjóði sveitarfélaga heimilt á grundvelli samnings að ráðstafa framlagi úr fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að upphæð 50 millj. kr. árlega á árunum 2022–2025 til verkefnisins Römpum upp Ísland, í þeim tilgangi að bæta aðgengi fyrir fatlað fólk á landsvísu.
Þingskjal 1402, 152. löggjafarþing 18. mál: tekjustofnar sveitarfélaga (framlög úr fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga).
Lög nr. 84 28. júní 2022.
Lög um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 (framlög úr fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga).
1. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Þrátt fyrir ákvæði 13. gr. b er Jöfnunarsjóði sveitarfélaga heimilt á grundvelli samnings að ráðstafa framlagi úr fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að upphæð 50 millj. kr. árlega á árunum 2022–2025 til verkefnisins Römpum upp Ísland, í þeim tilgangi að bæta aðgengi fyrir fatlað fólk á landsvísu.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 15. júní 2022.