Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 821, 153. löggjafarþing 568. mál: almannatryggingar (eingreiðsla).
Lög nr. 122 22. desember 2022.

Lög um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla).


1. gr.

     Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þeir sem eiga rétt á greiðslu örorkulífeyris skv. 18. gr. eða endurhæfingarlífeyris skv. 7. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, á árinu 2022 skulu fá eingreiðslu að fjárhæð 60.300 kr. Hafi lífeyrisþegi fengið greiddar bætur hluta úr ári skal eingreiðslan vera í hlutfalli við greiðsluréttindi hans á árinu. Eingreiðsla þessi, sem skal innt af hendi eigi síðar en 31. desember 2022, skal ekki teljast til tekna greiðsluþega og ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 14. desember 2022.