Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 2146, 153. löggjafarþing 952. mál: virðisaukaskattur o.fl. (eftirlitsheimildir, endurgreiðsla og séreignasparnaður).
Lög nr. 51 22. júní 2023.
I. KAFLI
Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.
Aðili sem hefur verið skráður að nýju á virðisaukaskattsskrá eftir að ríkisskattstjóri hefur úrskurðað hann af skránni skv. 9.–11. mgr. 5. gr. skal nota hvern almanaksmánuð sem uppgjörstímabil í að minnsta kosti tvö ár frá og með því tímabili sem skráning á sér stað að nýju og skal gjalddagi vera 15 dögum eftir að uppgjörstímabili lýkur. Hafi aðili gert fullnægjandi skil á þessu tímabili skal hann að því loknu standa skil á virðisaukaskatti skv. 1. málsl. 1. mgr.
Ákvæði 2. mgr. gilda einnig um nýskráningu og endurskráningu á virðisaukaskattsskrá skv. 5. gr. ef aðili sjálfur, eigandi, framkvæmdastjóri eða stjórnarmaður, sé um félag að ræða, hefur orðið gjaldþrota á næstliðnum fimm árum fyrir skráningu á virðisaukaskattsskrá.
II. KAFLI
Breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997.
III. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. öðlast 5. gr. gildi 1. júlí 2023.
Þingskjal 2146, 153. löggjafarþing 952. mál: virðisaukaskattur o.fl. (eftirlitsheimildir, endurgreiðsla og séreignasparnaður).
Lög nr. 51 22. júní 2023.
Lög um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og lögum um tekjuskatt (eftirlitsheimildir, endurgreiðsla og séreignarsparnaður).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:- 6. mgr. orðast svo:
- Á eftir 6. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Á eftir 7. mgr. koma þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Ríkisskattstjóra er heimilt að úrskurða aðila af virðisaukaskattsskrá hafi hann sætt áætlun virðisaukaskatts skv. 25. eða 26. gr. í tvö uppgjörstímabil eða fleiri eða er í vanskilum með álagðan virðisaukaskatt. Í stað fullnægjandi skila á virðisaukaskatti getur ríkisskattstjóri heimilað aðila að leggja fram tryggingu í formi skilyrðislausrar sjálfskuldarábyrgðar banka fyrir vangreiddum virðisaukaskatti að viðbættu álagi, vöxtum og innheimtukostnaði.
Ríkisskattstjóra er heimilt að úrskurða aðila af virðisaukaskattsskrá hafi hann sætt áætlun opinberra gjalda eða er í vanskilum með þau enda sé aðili ekki með gilda greiðsluáætlun við innheimtumann ríkissjóðs vegna vanskila.
2. gr.
Á eftir 1. mgr. 24. gr. laganna koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:Aðili sem hefur verið skráður að nýju á virðisaukaskattsskrá eftir að ríkisskattstjóri hefur úrskurðað hann af skránni skv. 9.–11. mgr. 5. gr. skal nota hvern almanaksmánuð sem uppgjörstímabil í að minnsta kosti tvö ár frá og með því tímabili sem skráning á sér stað að nýju og skal gjalddagi vera 15 dögum eftir að uppgjörstímabili lýkur. Hafi aðili gert fullnægjandi skil á þessu tímabili skal hann að því loknu standa skil á virðisaukaskatti skv. 1. málsl. 1. mgr.
Ákvæði 2. mgr. gilda einnig um nýskráningu og endurskráningu á virðisaukaskattsskrá skv. 5. gr. ef aðili sjálfur, eigandi, framkvæmdastjóri eða stjórnarmaður, sé um félag að ræða, hefur orðið gjaldþrota á næstliðnum fimm árum fyrir skráningu á virðisaukaskattsskrá.
3. gr.
27. gr. A laganna fellur brott.4. gr.
Í stað tilvísunarinnar „2. mgr.“ í 1. mgr. 27. gr. B laganna kemur: 4. mgr.5. gr.
Í stað hlutfallstölunnar „60%“ í 1. og 3. málsl. 2. mgr. 42. gr. laganna kemur: 35%.6. gr.
Í stað dagsetningarinnar „30. júní 2023“ í 1. málsl. 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XVI í lögunum kemur: og með 31. desember 2024.7. gr.
Í stað dagsetningarinnar „30. júní 2023“ í fyrra skiptið í 1. málsl. 1. mgr. og í 3. málsl. 2. mgr. og sömu dagsetningar í síðara skiptið í 1. málsl. 1. mgr. í ákvæði til bráðabirgða XVII í lögunum kemur: og með 31. desember 2024; og: 31. desember 2024.8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða LV í lögunum:- Í stað dagsetningarinnar „30. júní 2023“ í 1. og 2. mgr. kemur: og með 31. desember 2024.
- Í stað fjárhæðanna „4,5 millj. kr.“ og „6.750.000 kr.“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: 5.250.000 kr.; og: 7.875.000 kr.
9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. öðlast 5. gr. gildi 1. júlí 2023.
Samþykkt á Alþingi 9. júní 2023.