Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 2148, 153. löggjafarþing 45. mál: almenn hegningarlög (bælingarmeðferð).
Lög nr. 57 21. júní 2023.
Hver sem með nauðung, blekkingum eða hótunum fær einstakling til að undirgangast ógagnreynda meðferð í þeim tilgangi að bæla eða breyta kynhneigð, kynvitund eða kyntjáningu hans skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum.
Hver sem lætur barn yngra en 18 ára undirgangast meðferð sem greinir í 1. mgr. skal sæta fangelsi allt að 4 árum. Sömu refsingu skal sá sæta sem færir barn yngra en 18 ára úr landi í sama tilgangi.
Hver sem framkvæmir, hvetur með beinum eða óbeinum hætti til eða hefur þegið fé vegna meðferðar sem greinir í 1. mgr. skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári.
Þingskjal 2148, 153. löggjafarþing 45. mál: almenn hegningarlög (bælingarmeðferð).
Lög nr. 57 21. júní 2023.
Lög um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (bælingarmeðferð).
1. gr.
Í stað „og 2. tölul. 1. mgr. 227. gr. a“ í 3. mgr. 5. gr. laganna kemur: 2. tölul. 1. mgr. 227. gr. a og 2. mgr. 227. gr. b.2. gr.
Í stað „og 2. tölul. 1. mgr. 227. gr. a“ í 1. mgr. 82. gr. laganna kemur: 2. tölul. 1. mgr. 227. gr. a og 2. mgr. 227. gr. b.3. gr.
Við XXIV. kafla laganna bætist ný grein, 227. gr. b, svohljóðandi:Hver sem með nauðung, blekkingum eða hótunum fær einstakling til að undirgangast ógagnreynda meðferð í þeim tilgangi að bæla eða breyta kynhneigð, kynvitund eða kyntjáningu hans skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum.
Hver sem lætur barn yngra en 18 ára undirgangast meðferð sem greinir í 1. mgr. skal sæta fangelsi allt að 4 árum. Sömu refsingu skal sá sæta sem færir barn yngra en 18 ára úr landi í sama tilgangi.
Hver sem framkvæmir, hvetur með beinum eða óbeinum hætti til eða hefur þegið fé vegna meðferðar sem greinir í 1. mgr. skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári.
4. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2024.Samþykkt á Alþingi 9. júní 2023.