Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 853, 154. löggjafarþing 578. mál: almannatryggingar (eingreiðsla).
Lög nr. 109 22. desember 2023.

Lög um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla).


1. gr.

     Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þeir sem eiga rétt á greiðslu örorkulífeyris skv. 24. gr., sbr. 26. gr., eða endurhæfingarlífeyris skv. 7. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, á árinu 2023 skulu fá eingreiðslu að fjárhæð 66.381 kr. Hafi lífeyrisþegi fengið greiddar bætur hluta úr ári skal eingreiðslan vera í hlutfalli við greiðsluréttindi hans á árinu. Eingreiðsla þessi, sem skal innt af hendi eigi síðar en 31. desember 2023, skal ekki teljast til tekna greiðsluþega og ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 16. desember 2023.