Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Willum Þór Þórsson
3. þm. SV, F, WÞÞ
Willum Þór Þórsson

   
Vilhjálmur Bjarnason

Vilhjálmur Bjarnason

Fæddur í Reykjavík 20. apríl 1952.

Stúdentspróf MH 1972. Próf í bóklegu atvinnuflugi og blindflugi hjá Flugmálastjórn 1973. Cand.oecon.-próf frá HÍ 1977. MBA-próf frá Rutgers University, New Jersey 1997.

Starfaði á reiknistofu Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands 1972-1973. Vann með námi hjá Seðlabanka Íslands 1974-1976 og 1995-1996. Starfaði hjá Útvegsbanka Íslands, m.a. í hagdeild og sem eftirlitsmaður útibúa 1977-1987, útibússtjóri bankans í Vestmannaeyjum 1980-1987. Starfsmaður Kaupþings hf. 1987–1988. Kennari við Iðnskólann í Reykjavík 1989–1995. Forstöðumaður verðbréfamarkaðar Fjárfestingafélagsins 1991–1993. Sérfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun og síðar Hagstofu Íslands 2000-2007. Framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta 2007-2014.

Í stjórn Samtaka fjárfesta 2000-2014, formaður 2000–2007, í varastjórn Samtaka sparifjáreigenda 2014-2016 og í stjórn frá 2016. Í nefndum á vegum viðskiptaráðuneytisins um endurskoðun laga um fjármálafyrirtæki og verðbréfasjóði frá 2009. Félagskjörinn skoðunarmaður Hins íslenska biblíufélags 2011-2016.

Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2013-2017 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Suðvesturkjördæmis júní 2020 (Sjálfstæðisflokkur).

Efnahags- og viðskiptanefnd 2013-2017, utanríkismálanefnd 2013-2016 og 2017.

Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2013-2016 og 2017, þingmannanefnd Íslands og ESB 2013–2016.


Hefur birt nokkrar greinar um fjármál og málefni fjármálamarkaða í innlendum og erlendum fræðiritum.


Síðast breytt 02.02.2021.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.