6.11.2023

Breytt framsetning á kostnaðargreiðslum þingmanna í alþjóðastarfi

Kostnaður þingmanna vegna alþjóðastarfs sem greiddur er af öðrum stofnunum en Alþingi, svo sem Norðurlandaráði eða Evrópuráðsþinginu, birtist nú undir hagsmunaskráningu viðkomandi þingmanns á vef Alþingis. Enda teljast þær greiðslur ekki hluti af greiðslum sem Alþingi innir af hendi vegna alþjóðastarfs þingmanna.

Breytt framsetning gildir frá 1. janúar 2023.