23.8.2023

Forsetar þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja funda í Stokkhólmi 24.–25. ágúst

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, sækir árlegan fund þingforseta Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem að þessu sinni er haldinn í Stokkhólmi dagana 24.–25. ágúst. 

Á fundinum munu þingforsetar m.a. ræða samstarf þjóðþinganna og innri störf þeirra, alþjóðlegt þingmannasamstarf í skugga Úkraínustríðs og traust til þjóðþinga og annarra stofnana.