5.7.2019

Forseti Alþingis viðstaddur setningu Manarþings

Forseti Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon, var gestur við þingsetningu á eyjunni Mön í dag, ásamt eiginkonu sinni, Bergnýju Marvinsdóttur. Þinghaldið á Mön fer fram undir berum himni og er kennt við Tynwald eða Þingvelli á eynni. Athöfnin er árlegur viðburður á þjóðhátíðardegi Manar og á rætur sínar að rekja aftur til víkingaaldar.

Setning-Manarthings-05072019Steingrímur J. Sigfússon og Bergný Marvinsdóttir, ásamt Steve Rodan, forseta Manarþings, og Kerry Bush, eiginkonu hans.